....Ragga Silja.....
29.11.2006 22:46:30 / RaggaSHJ

NÝ SÍÐA

NÝ SÍÐA TAKIÐ EFTIR www.raggasilja.bloggar.is :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 20:42:04 / RaggaSHJ

Daglega lífið byrjað

ÓJÁ! náði bóklega í bílprófinu....og þvílíkur léttir.:) og ef ég næ verklega á miðvikudaginn þá er þotin af stað! 

En stutt blogg í kveld....

Dagarnir fljúga áfram og maður er bara kominn í góðan gír í skólanum! Nema það að nánast allir eru komnir með flensuna eða kvef, meðal annars ég! Allir sjúgandi uppí nefið í tímum og hóstandi einsog berklasjúklingar..eða ég kannski.:$ Busaballið..var ekki eins skemmtilegt og ég hélt að það yrði..gvuð.

þegar ég er orðin svona dökkhærð þá breytist ég bara í lík gjörsamlega, hörundið alveg litlaust, haustið líka eitthvað að sýna sig og sólin nærrum farin þannig að ég ákvað að kaupa mér brúngelið Loréal;) jáh, ég verð að gera eitthvað í þessu! En það væri nú týpist að ég myndi mæta í skólann einsog blettatígur nema bara brúnn og hvítur..en sakar ekki að prófa þetta í staðinn fyrir þessa krabbameinsbekki:haha:

En fátt að segja annað...ég gerði góðverk í dag með því að planta 150-160 plöntur með pabba! Jáh, þau gömlu orðin skógræktarbændur:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 18:56:04 / RaggaSHJ

Týra

Týra litla fór um daginn þar sem hún hefur fylgt mér yfir ævina frá því að ég var bara tveggja ára gamalt kríli! Ég veit að þetta var bara hundur en það er alveg ótrúlegt hvað svona dýr geta verið náin manni. Ég veit að hún átti ekki langt eftir, en samt þegar kom að því þá var þetta erfiðara en ég hélt. Maður talar um einsog þetta hafi verið manneskja, en það var ekki en ég get sagt að hún var ein úr fjölskyldunni. Maður fattar það bara eiginlega núna hvað hún var okkur mikils virði og hve mikið hún gladdi okkur! Ég man til dæmis þegar pabbi sagði að hún hafi passað okkur krakkana í Eyvík þegar mamma og hann voru í vinnu á daginn.....það er skrítið að fara að sofa á næturnar því maður var vanur að hafa 2 hunda uppí hjá sér sem taka allt plássið..og hroturnar í Týru gömlu..hehe.. 

Týra er ógleymanleg og við munum sérstaklega vel eftir því þegar hún tók þátt í hundasýningunni í sambandi við Hundaræktafélag Íslands árið 1994 þar sem hún lenti í 2. sæti (enda fallegasti hundurinn þarna), og þegar hún lenti í umferðarslysinu en lifði það af sem í fæstum tilvikum gerist, eignaðist þá 5 hreinræktaða hvolpa árið 1995, og síðan seinna skiptið fyrir þremur árum 4 hvolpa þar sem gotið Kola kemur til sögunnar;)

Veit að þetta var kannski fullmikið að segja...en mér fannst ég verða að skrifa smá svona um hana Týru litlu...:)

tyralitla.JPG

olivertyraogkola.JPG

Tyra1.JPG

tyrasumarbúst.JPG

tyrakola2.JPG

tyra2.JPG

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 01:15:58 / RaggaSHJ

var þetta sumar í lagi eða?

Var búin að blogga heilanhelling þangað til ég þurfti að stoppa og skreppa á starfsmannafund og þegar ég kom aftur heim þá var mamma mín búin að slökkva á tölvunni og allt bloggið mitt horfið! Suss...kann ekkert á þetta sú gamla!

En það hefur ekki margt á daga mína drifið verð ég að segja...eða ég mætti segja bara í allt sumar! Það er nú aðallega vinnan sem tekur mestan tímann frá manni...er búin að vera að vinna fk allar helgar í sumar nema kannski ein fríhelgi eða má kalla það frí. Þetta var einn sunnudagur. Er það sanngjarnt? + það að sumrinu er að ljúka. Eða var þetta sumar?:S Skólinn að byrja og svona, sem er bara ágæt tilhugsun held ég bara...mig hlakkar nú bara til að komast á busaballið skoh;) og styttist ávallt í Laufskálaréttarballið! VÁH..það var svo geðveikt í fyrra! jæja, en maður getur þó verið eitthvað bjartsýn yfir því sem er að gerast á næstunni....En næsta sumar verður skoh sumar í lagi!

Versló um þarsíðustu helgi en ég var náttúrulega að vinna og þar sem vinkonur mínar voru á Akureyri að djamma feitt, en fékk þó aðeins að sletta úr klaufunum á sunnudeginum og fylgdi straumnum á Sjallann á Ak....:) og þar skemmti ég mér bara nokkuð vel!

Nenni bara ekki að blogga meira...en ein spurning, eru einhverjir á leiðinni á menningarnótt næstu helgi???8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 22:32:17 / RaggaSHJ

Hvað er Jónsmessuhátið?:S

Hvað er málið með veðrið?! Ég er bara að gefast upp á þessu...mig langar bara að komast eitthvert burt, fara á sólarströnd og bara liggja í leti áhyggjulaus:) Vill einhver gefa mér sólarlandaferð í afmælisgjöf?:haha:

En helgin var nú bara nokkuð góð þrátt fyrir að maður var að vinna allan tímann! Það var skellt sér í partý á föstudaginn og afmæli á laugardaginn. Þetta tók á...þá meina ég verulega!8| 17 júní var alveg nóg að gera í vinnunni...vá hvað það er pirrandi þegar viðskiptavinurinn er óheiðarlegur:!:

Þá styttist í Jónsmessuhátíðina sem er næstu helgi...er ekki alveg stemmari fyrir því að fara á Höfsós?? Allavega hef ég heyrt af því! En núna er nákvæmlega eitt ár síðan ég var í Danmörku og hefði nú viljað vera þar núna og njóta Jónsmessuhátíðarinnar eða "Sankt Hans aften" einsog það er kallað á dönsku í Felleparken (risastór almenningsgarður í Köben)....það var meiriháttar gaman og það er svo miklu meiri hátíð þar en hér á Íslandi. Nálgast einnig í Roskilde festival sem sumir héðan ætla að skella sér á:evil: mig langa þangað!

Er með nokkrar myndir frá afmælinu heima hjá Guðrúnu í "Myndir" en það er ekki mikið! En hérna eru einnig smá minningar frá Sankt Hans aften í felleparken í fyrra;)

S3700258.JPG

 

S3700259.JPG


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 01:12:50 / RaggaSHJ

Lesa:)

Obbosí!

Gott kvöld. Fyrsta árið í menntó yfirstaðið með ágætis einkunnum og sumarfrí tekur við! en það byrjaði bara nokkuð kalt verð ég nú bara að segja. Jáh þá ég við að það bara kom algjör snjókoma og hríð...þetta íslenska veður alltaf að pirra mann en mér persónulega leist ekkert æðislega á þetta einsog örugglega flestum. Maður vill fá gott sumar! Ég verð samt kreisí ef það verður svona ógeðsleg þoka einsog það var síðasta sumar...djöfull var það niðurdrepandi.

Er náttúrulega byrjuð á Ábæ sem er bara alls ekki sem verst verð ég að segja! Og nýt þess virkilega að vera í fríi núna í 3 daga.....sofa til hádegis og setja einhverja góða mynd í spilarann..og gera ekki annað en að vera löt8) Reyndar var ég pínu veik í fyrradag en er samt búin að ná mér eiginlega! Einhver skyndiveikindi. En ég upplifaði ógeðslega creapy svefn sem kallast víst draumsvefn eða "rapid eye movement"..all details, yes. En það var þannig að ég var alveg að fara að sofna (svona dottaði) en síðan kom eitthvað yfir mig og fékk svona geðveikan straum í líkaman einsog ég fengi raflost or somt. og síðan titruðu augun mín einsog ég væri að bíða eftir að ég myndi sjá eitthvað ógeð og heyrði bara barnsgrátur....ég reyndi að öskra en ég gat það ekki:cry:....þetta er svona einsog það kemur geðveikt hræðsla í mann bara allt í einu. Nóg um mína geðhræðslu og ímyndunarveiki.

Hef reyndar lítið að segja meir...bth.....mér var sagt að það myndi vera ball með von þann 17 júní? Er það rétt??:o

Er farin!


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 13:08:23 / RaggaSHJ

HEEIJA ALÍÚBBA!

Kann ekki sænsku

Heilar aldir hafa liðið síðan ég bloggaði síðast! Þetta er hræðilegt.

En heyriði mig! Ég er kominn með síðu (ætla samt ekki að hætta með þessa!), en það er sirkussíðan vefffangið er www.RaggaSilja.minnsirkus.is .

Ég held áfram með þessar afsakanir...:) Það er klikkað að gera....og þá núna er það satt! Ég er í endalausum prófum þessa daganna og þessu linnir ekki fyrr en þann 22eða3.. Voða lítið að gerast annars nema læra frá morgni til kvelds og æfa. Það er nú samt stutt í sumarfríið og þá verður tekið rækilega á því...einsog þið flest ætlið örugglega að gera;) Sumardjobbið er Ábær hjá mér, og var það bara heppni að ég fékk það. Nokkuð sátt með það nema þetta er laangar vaktir..eitthvað annað en á sjúkrahúsinu í fyrra! En ég sótti frekar seint um því ég hélt að ég væri að fara til Svíþjóðar og Danmerkur en ekkert varð úr því:frown: Maður sættir sig nú við það, eða kannski ekki. En síðan eru nú önnur plön í gangi en er þetta nú allt óttalega mikið vesen! Hugsað er um að fara til Spánar með familíunni í byrjun júlí. Samt er þetta nú allt eitthvað svo óöruggt.....erfitt að fá frí í vinnunni og svoleiðis leiðindi!....Pælið í því fresta Kúbuferð og síðan fresta 2vikna  sinfóníuskóla í Svíþjóð og djamm í Danmörku?! Þetta er ekki hægt....en við erum samt búin að lofa okkur því að fara til Kúbu næsta páskafrí! En aðalmálið með þetta blogg mitt í dag er að ég ætla að setja upp svona mjög sniðugan spurningalista (einsog ragnhildur er með):). Veit nú ekki hvort það séu margir með þetta....hef ekki hugmynd! 

p.s. Hvenær er hestamannalandsmótið? og Verslunarmannahelgin?      

En Ása María verður sú fyrsta sem svarar spurningunum......okey:) híhí en hún er hægra megin á myndinni einsog þið vitið flest8)

katrnogsa.jpg

1. Fullt nafn: Ása María Guðmundsdóttir

2. 
Gælunafn: Ása…

3. Aldur: 17 ára og 5 mánaða og 4 daga gömul

4. 
Hvað ertu langur/löng? 170!

5. Ertu þung? My oh my…já pínu

6. Ertu á lausu? Jáhá

7. Börn? Rafaelinn minn…svo rek ég munaðarleysingjahæli líka

8.  Hvar býrðu? Eyrartúni 8, 550 Sauðárkóki

9.  Hvað ert þú að gera þessa dagana? Ja voða lítið…að læra fyrir próf ætti að vera forgangsröð en þar sem veðrið er svo gott hef ég ekki verið alveg nógu dugleg

10.  Hvernig myndiru lýsa þér í 3 orðum?  Glaðlynd, hress og pínu rugluð held ég bara

11. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Án efa drekka í góðra manna hóp, hlusta á góða tónlist og ferðast

12.  Vinnuru einhverstaðar? Nei er bara í skóla í augnablikinu en er að fara á Höfn í Hornafirði að vinna á hóteli í sumar;)

13. 
Ertu í skóla? Já...FNV þeim dágóða skóla

14.  Drekkuru? Ójá og elska það.

15. Besta vinkona? Það mundu vera þær Katrín, Sunna, Andrea og Fanney Skúla

16. Besti vinur? Þónokkrir sko...

17. 
Munduru telja þig vera hösslara? Nei ég lít ekki á sjálfa mig ekki sem hösslara;)

18. Hvað er það heimskulegasta að gera þegar maður er að hössla? Koma með lélegar pikkupplínur…eða perrast…

19. Hver er mesti hössler sem þú veist um? Það mundi sko vera hún Jenný Lind!

20. Hefuru verið oft á föstu? Neibb

21.  Hvað er skemmtilegasta djamm sem þú hefur farið á? Bústaðapartýið sem 110 krúið hélt stendur uppúr…en verð samt eiginlega að nefna fyrsta fimmtudagsfylleríið líka

22. Ertu mikill djammari? Mér finnst allavega innilega gaman að skemmta mér

23. Ertu með einhvern í sigtinu núna? Eitthvað lítið…enda er ég að yfirgefa bæinn eftir tæpann mánuð og þá er ágætt að vera ekki með hugann alltof mikið hérna!

24. Hvernig leggst sumarið í þig? Þetta sumar verður ruglað, kjánalegt...fatlað að sumu leiti en þó skemmtilegt held ég

25.  Hver eru helstu áhugamálin þín? Svo mörg, svo mörg…góð tónlist, djamma, bíómyndir, góðar bækur:O...bara að hafa það gott sko! 

26. Tekuru mikið pláss í rúminu? Ég kúri mig útí horni í stóra tilgangslausa rúminu mínu

27. Fyrimynd? Humm…er ljótt ef maður á enga fyrirmynd?

28. Uppáhalds skemmtistaðurinn? Miðgarður verð ég sko að segja:D

29. Uppáhalds hljómsveit? Vá þær eru of margar fyrir lífið…en ég held mest uppá Guns’n roses, The White stripes, Bob Marley, Uriah Heep, Bítlana og jáá mikið fleiri!:O

30. Áttu msn? Aha…asamari01@hotmail.com

31. Besta bíómyndin? Donnie Darko, Brothers Grimm, The chronicles of Narnia, LOTR, Harry Potter, Beetlejuice…og margar fleiri

32. Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Futurama að eilífu…Family Guy, The Simpsons, Turtles, Desperate housewifes, Threshold, Cold Case, Queer eye for the straight guy:D og fleiri!

33. Hvað finnst þér skipta mestu máli í sambandi? Traust og það að vera vinir

34. Fallegasti maður/strákur í heimi? Jeff Buckley án efa...bara verst að hann er dáinn
L ...

35. 
Fallegasta kona/stelpa í heimi? Angelina Jolie

36. Besti maturinn og hvar færðu hann? Pastaréttiur í svona piparostasósu hjá mömmu
J ...líka kartöflugratínið sem hægt að er kaupa í hlíðó J

37. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Ofmetnaður, mont, stælar…þröngsýni og frekja

 38. Uppáhalds drykkur? Kók og sódavatn

39. 
Ertu morgunfúl manneskja? Neei get ekki sagt það

40. Framtíðaráform? Ættli ég taki mér ekki smáfrí frá skóla eftir fjölbrautina en svo er planið að fara að læra kokkinn ;)

41. Mottó?  Mottó já…aldrei verið mikið fyrir mottóin sko…finnst best að lifa bara eins og mér dettur í hug þá stundina

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 01:39:03 / RaggaSHJ

Halló, halló :)

Langt síðan síðan síðast!

Páskafríið byrjað og er það nú mjög indælt..:)

Undanfarið hefur margt á daga mína drifið. Jahá!

Einsog þið flest vitið þá var söngvakeppni framhaldsskólanna síðastliðin laugardaginn.

Bara mörgum vikum fyrir þessa keppni hef ég verið að stressa mig útaf þessu en í rauninni var þetta ekki eins erfitt og ég bjóst við! Við stóðum okkur bara mjög vel þarna á sviðinu skilst mér og fengum meira að segja verðlaun fyrir vinsældarkosningu. Það fannst okkur mjög ótrúlegt...við trúðum því nánast ekki...svona við komum úr sveitinni og þetta er örugglega með þeim minnstu skólum á landinu. En þetta var stórkostlegur sigur að mínu mati! En þetta var nú samt erfiður dagur! Þurfum að vakna klukkan níu um morguninn til þess að mæta á general prufu. Ok, við hefðum getað mætt þarna svona klukkan tólf. Þetta var sko ömurlegt, tæknimennirnir og kynnarnir voru alltaf að slóra eitthvað og þetta var bara hræðilegt fyrirkomulag...þau gátu aldrei haldið áfram með smjörið! En ekki nóg með það heldur rafmagnið sló út í Kópavogi og Garðabæ. Alveg týpist. Við þurftum að bíða í örugglega 20 mínutur þangað til rafmagnið kom aftur en við notuðum tímann og æfðum okkur í búningsklefa nr. 4 í niðamyrkri...það var stemmning:D Síðan kom húsvörðurinn inn og kom með kertaljós handa okkur. Þetta var erfiður dagur en samt skemmtilegur.

Váá við vorum að fá örugglega fimmtán sms frá fólki sem var  að óska okkur til hamingju með árangurinn! Þannig ekki taka því nærri ykkur ef ég senti ekki til baka:$ ég eyddi samt 1000 krónu innistæði bara á þessum degi...skil ekki alveg afhverju:s

En nóg um það.

Ég er enn stödd í Reykjavík og er bara að njóta Páskafrísins. Hef nú ekki verið að gera mikið hérna en fór reyndar í kringluna á föstudaginn með Hrund og Binna en Binni þraukaði ekki að vera mikið með okkur því við vorum strax byrjaðar að búðarrápast;) híhí...en þar sáum við líka krakka vera að dimmitera! Það var alveg magnað dæmi. Skólarnir með sitt eigið þema t.d. MRingarnir voru í sérsaumuðum hænsnabúningum (veit það vegna þess að frændi minn var einn af þeim, held nú bara að allir þessir búningar voru sérsaumaðir!) En það var sniðugt! Kvennaskólinn var með þjóðlegt þema. Voru öll klædd í þjóðbúningum og dönsuðu gamla dansa á Ingólfstorginu reyndar fyrri partinn á föstudeginum. Síðan var einhver skóli með Grease þema...Allar stelpurnar í svona “Pink ladies” jakka og strákarnir í “T-birds” leðurjökkum! Einhver skóli var með Samuraiar þema og síðan sá ég nokkra blóðuga lækna....8| En það var alveg stappað í kringlunni þann dag og mikið að gera!

Í kvöld fór ég á “V for Vendetta” sem er náttúrulega bara snilldarmynd! Frumleg, hefur mikinn boðskap og sýnir að fólk notar óttann til að stjórna öðrum. Mæli sterklega með henni.

Ball á föstudaginn. Pottþétt! En á laugardaginn. Er einhver að fara?

Jæja, en ég kem heim ekki á morgun heldur hinn, semsagt á miðvikudaginn ef þið vilduð vita...;)

Segi þetta gott.....Verið bless ekkert stress!

 

 




» 13 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 21:58:06 / RaggaSHJ

Gúddí fíling!

Góða kveldið...:D

Árshátíðin var sæmileg en samt ekki nógu góð...fannst mér:) en ég gerði mig að svo miklu fífli þarna.váh! En maður verður nú stundum að gera grín af sjálfum sér :haha:

  • Í fyrsta lagi þá sagði ég við Ingva Hrannar: "til hamingju með þriðja sætið" en hann var herra fnv og það var heldur ekkert 3 sæti! Ég er svo skemmtileg..eitthvað að reyna að hrósa fólki en tekst bara stundum ekki.:haha: Ég man skoh ekkert eftir því að hafa sagt þetta, en hann minnti mig á það í sjoppunni í dag...og þá leið mér einsog mesta hirðfífli í heimi! En vonandi tók hann þessu ekki nærri sér;)
  • í 2. lagi var ég að dansa við Svenna og ég var í pinnahælum.....boðar ekki góðu. En já, ég snéri mér í örugglega 6 harkalega hringi og bara "búmm" datt feitast í gólfið og hló einsog asni liggjandi í gólfinu.
  • Hitti líka Sigríði Ingu í sjoppunni í dag og hún var að minna mig á það hvað ég væri mikill "snillingur":lol: ég var alltaf að koma að tala við hana en sagði samt alltaf það sama: "Sigríður Inga nemenda....uu..nemenda....forstjóri!" og síðan kallaði ég hana forseta það sem eftir var að ballinu.
  • Eftir ballið fórum ég Steinunn, Hulda og Harpa með sunnu á rúntinn...haha..þar sáum við Sverrir Bergmann og kærustuna hans labba frá barnum. Og síðan hægðum við hjá hraðahindruninni hjá bankanum og öskruðum einsog hálvitar útum gluggann: "go Sverrir Bergmann"....hann setti upp svo mikinn svip..minnir mig..held að hann hafi verið reiður..híhí

En nóg með þetta....en þessa laugardagsnótt var ég alveg bara...húff..verð að passa mig á þessum látum:haha: En segi þetta gott! En heyrheyr það eru komnar myndir frá stelpupartýinu sem var um daginn;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 21:10:08 / RaggaSHJ

AFHVERJU??!! gaddem

Það er búið að vera mikið vesen með mig síðustu daga! Þá meina ég að ég þurfti að taka stórar ákvarðanir. Það sem ég er að tala um er þessi draumur um Kúbu, sem er víst ekki að fara að rætast. Það er alveg ömurlegt! Ekki sammála? Og ástæðan fyrir því er útaf þessari helvítis söngvakeppni framhaldsskólanna er í PÁSKAFRÍINU! Hversu fáránlegt er það?! OK, fólk er búið að panta sér ferð til útlanda löngu áður en forkeppni söngvakeppninnar er..og svo þarf maður að afpanta ferðina...:cry: Ég er svo léleg í að taka ákvarðanir sjálf + það að þetta er stærsta ákvörðun sem ég hef tekið. Reyndar var þetta ekki allt í mínum höndum. Mamma og pabbi voru líka sammála að við myndum ekki fara til Kúbu  í ár heldur næsta vor! Þannig ég þarf bara að hlakka til næsta árs. Maður getur alltaf farið til Kúbu en keppnin er kannski eitthvað sem gerist einu sinni á ævinni sjáið til:$

Þetta er týpist.

Fyrirgefðu Sigyn:( ég veit að þetta er grautfúlt!

N ég er farin...!! Verið bless


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 23:19:46 / RaggaSHJ

eitthvað sem vantar?? :S

Jæja gott fólk!

Ég var skoh ekki að meika það á körfuboltaæfingu í kveld þannig ég ætlaði nú að vera svo ofboðslega dugleg og fara í frjálsa tímann klukkan tíu. Píndi Huldu og allt til þess að koma með mér....En nei, enginn frjáls tími! dévítans! Húsvörðurinn: "það hefur ekki verið í allan vetur"...blablabla....mig minnti að það hefði verið á þriðjudögum? allavega fyrir áramót?!

Jæja. Helgin var sýrð. Ójá. Hún var alveg nett skemmtileg nema var alveg úrvinda á sunnudeginum:$ Átti að vera ball.......alltaf þegar maður er í stuði til að fara á ball þá er ekkert ball! En þegar maður er að fara á ball þá er manni alveg sama og er ekkert í það góðum gír..allavega finnst mér það. En já, hvað er þetta annars með böllin? Það eru engin böll....manni leiðist svo mikið um helgar að það er ekki eðlilegt...áfram með smjörið hérna, fleiri böll!

Styttist í árshátíðina! Ætla ekki allir að fara?? Þetta verður svakalegt...þvílíkur uppistandari, Á Móti Sól er að spila og góður matur og sonna;) Það verða allir að mæta! Bara byrja að spara peningana því held að þetta verði alveg ágætlega mikill peningur sem fer íetta.

Mér finnst lífið hjá mér vera eitthvað svo tómt núna akkúrat þessar síðustu 5 mínútur sem hafa liðið. Veit ekki afhverju, kom bara eitthvað skrítið uppí heilan minn. Það vantar eitthvað, en veit bara ekki hvað það er! Æjj..nenni ekki að fara út í heimspeki eða einhverja steypu. En þetta er samt skrítið..:$

Myndir fara að koma á netið frá því um helgina..og síðan voru einhverjar alveg eldgamlar myndir í myndavélinni áður. Svo þið kíkkið reglulega á bloggið..ekki rétt?;) 

Segi þetta gott í kveld!


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 18:25:36 / RaggaSHJ

ER EINHVER MEÐ LAUST FAR SUÐUR UM HELGINA??

OMG....það er ekki ball um helgina!! Einsog þið vitið. En það er ömurlegast í heimi þar sem öllum var farið að hlakka svooo til...:( svona er þetta!

En ég er að leita mér að fari til Rvk á morgun. Einhver sem er að fara? Endilega látið mig vita ef það er laust sæti!

Prófin eru í gangi....reyndar á ég bara eitt eftir...hnéhné8) Var í þrem prófum í gær, sem var mjöög erfitt...ég var líka óvenjulega þreytt í gær eftir daginn. Ég var ekki bara í prófum. Nei. Ég fór í tónlistarskólann klukkan fimm og var til sjö. Eftir það fór ég síðan á körfub.æfingu og var til hálf tíu!

Ég er ekki að standa mig í að taka myndir! Suss...ég verð að fara að setja myndir á síðuna! annað er ekki hægt.

Þetta er nóg mikið blogg í dag!


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 23:09:38 / RaggaSHJ

.......

Það er ótrúlegt hvað lífið getur verið ömurlegt stundum.....váhh! og ósanngjarnt:cry: en maður verður að sætta sig við allskonar afleiðingar sem getur verið erfiðast í heiminum:whut: En hvað á maður að gera þegar maður er heimskur unglingur? manni finnst allt ömurlegt! maður nennir ekki að gera neitt, alltaf í vondu skapi....en reyndar það eina sem maður nennir að gera er að djamma, vera fullur og sofa..:$ eða ég hugsa þannig. Ég nenni einfaldlega ekki að gera neitt, en samt gerir maður það alltaf því það er alltaf verið að reka á eftir manni! hvað er í gangi í þessu heilabúi..??? Það er svo mikið á seiði að maður fattar ekki neitt hvað maður er að pæla....maður veit ekkert hvernig maður á að vera, alltaf að hafa áhyggjur (eða ég)......Doctor Phil,  svaraðu mér? Hvenær hættir þessi ömurlegi partur í lífinu?...bara fór svona aðeins að hugsa.


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 21:06:12 / RaggaSHJ

:I

X-FILES X-FILES X-FILES X-FILES X-FILES X-FILES X-FILES X-FILES X-FILES X-FILES.....YEAH!!

Ætlaði bara aðeins að tjá mig


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 00:07:05 / RaggaSHJ

og það er KÚBA :)

Ég hef bæði slæmar og góðar fréttir að færa í dag.

Undanfarna daga hef ég verið að velta því fyrir mér alveg ískyggilega mikið hvernig þessi heimur á eftir að verða næstu 30 árin....Maður er búin að heyra svo mikið um hvað þetta er að verða alvarlegt ástand, þá er ég að tala um mengun og hvað manneskjan er orðin sjúk. Ég er virkilega farin að taka þetta til mín persónulega, og ég hef verið að hugsa að það þýðir ekkert að vola lengur heldur á maður að gera eitthvað í þessu mjög alvarlega ástandi, þá meina ég mengunin ekki sjúkleika manneskjunnar...því ég get ekki gert neitt í því því fólk getur álitið mig sjúka...:haha: En minnir mig á það......eitt í sambandi við múslima og danina.....ég var að skoða fréttablaðið í dag og sá mynd af múslimum brenna danska fánann. Ég get svo svarið það, maður sá bara glott á þeim sumum! Þegar maður er að horfa á upptökur í fréttunum frá þessu...það eru svo ógeðslega margir mótmælendur og svo er þetta svo gróft! Viðbjóður.

Hverju eiga hermenn að sinna? Jáh, ég var að horfa á fréttirnar í kveld og þar voru birtar myndir af hermönnum sem voru að berja mótmælendur...þá unglingspilta! á meðan hermennirnir börðu þá með kylfum og spörkuðu í þá var herforinginn að taka þetta uppá vídjó. Síðan var hann eitthvað að segja inná upptökuna "nasty little boys" og hló síðan..Ætli það sé ekki bara áhættusamt að hafa hermenn á þessu svæði! Eiga að vera að hjálpa til.....þeir ættu bara að snáfast heim til sín og sinna sínum eigin kellingum!

Jæja nóg um þetta ógeð!

Þorrablótið sem var á föstudaginn var geðveikt!! Þetta var alveg magnað:lol: Nema maturinn var vondur...:$

jæja hvað á að gera í páskafríinu?? Kannski ekki fara til Kúbu einsog ég? :) :klikk: ÉG ER AÐ FARA TIL KUBA!!! ÓJÁH.....!!!! og það verður þann 4 apríl! Sigyn, það verður skemmt sér í botn:D Minn stóri draumur mun rætast8| þvílík hamingja!

Jæja, þetta mun vera nok...! Verið hress;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6