ÓJÁ! náði bóklega í bílprófinu....og þvílíkur léttir.
og
ef ég næ verklega á miðvikudaginn þá er þotin af
stað!
En stutt blogg í kveld....
Dagarnir fljúga áfram og maður er bara kominn í góðan gír í
skólanum! Nema það að nánast allir eru komnir með flensuna eða
kvef, meðal annars ég! Allir sjúgandi uppí nefið í tímum og
hóstandi einsog berklasjúklingar..eða ég kannski.
Busaballið..var ekki eins skemmtilegt og ég hélt að
það yrði..gvuð.
þegar ég er orðin svona dökkhærð þá breytist ég bara í lík
gjörsamlega, hörundið alveg litlaust, haustið líka eitthvað að
sýna sig og sólin nærrum farin þannig að ég ákvað að
kaupa mér brúngelið Loréal
jáh, ég verð að gera eitthvað í þessu!
En það væri nú týpist að ég myndi mæta í skólann
einsog blettatígur nema bara brúnn og hvítur..en sakar ekki að
prófa þetta í staðinn fyrir þessa krabbameinsbekki
En fátt að segja annað...ég gerði góðverk í dag með því að
planta 150-160 plöntur með pabba! Jáh, þau gömlu orðin
skógræktarbændur